Dadara..

Hey man..

27.11.2006 18:30:50 / helga_

hahaha

<>
</>

You're a Wild Drunk
You can get enough drink. Seriously, you'll just go puke and start pounding them back again!

http://images.blogthings.com/whatkindofdrunkareyouquiz/wild-drunk.jpg" height="100" width="100">


You can get enough drink. Seriously, you'll just go puke and start pounding them back again!


» 4 hafa sagt sína skoðun

31.10.2006 00:55:03 / helga_

hey jó..

hey..ég lofaði að blogga að í Október..og og.. annað

ÉG á líka afmæli..bara svona svo þið vitið!!!;)

aðeins fleiri kerti á minni reyndar en samt er ég algjört unglamb:)

KV. Helga afmælisbarn sem vil bíl í afmælisgjöf!!


» 13 hafa sagt sína skoðun

03.10.2006 21:42:08 / helga_

munar bara 3 dögum..

Kvöldið mínir dyggu lesendur.. ef þeir eru þá einhverjir eftir sökum leti minnar.

En í síðasta bloggi sem ég skrifaði í júlí eða e-ð ( já, bæ ðe vei, þá fór ég á írska daga;)) þá sagði ég að það væri komið nóg fram í september þannig að það munar 3 dögum að ég hafi staðið við mitt.. so close!

En það er fullt búið að gerast á þessum tíma og ber þar hæst að nefna Búlgaríuferð okkar vinkvennanna og var þessi ferð ógleymanleg í alla staði..

  • Pub crawl
  • Villan í Varna
  • Þynnka.is A.k.A ég og Gunna Maggý aðallega:)
  • Nudd á ströndinni
  • Parasailing (Auður grænlendingur;))
  • Pub crawl
  • Nætursund
  • Klósettkonur
  • Klósettkonur
  • Æla bak við sófa
  • Karókí barinn (Ég og Gestný banned for life time líklega)
  • Tourette
  • Pub crawl
  • Klósettkonur
  • Hrotur;)
  • Ein lítil og kínversk birtist
  • EEELLSKLIINNG
  • Rassgat, rassgat og píka
  • Hey bro og Boorrrinnng
  • Köfun (eða ekki köfun)
  • Afmæliskvöldverður og kaka
  • Shopska
  • B52
  • Vodki í vatn(ojj)
  • og svo fullt fullt meira..

Takk stelpur (og strákar) fyrir æðislega ferð:)

Áður en við fórum út að borða á afmælisdaginn hennar Hildar..

Ég og Þóra á leiðinni í myndatökuna.. falllegur varalitur:S

Sjáiði bara hvað það er klikkað gaman í Pub crawl

En svo tók bara strax við skóli og er það bara fínt.. langt síðan ég hef verið með svona fáar einingar og svo ennþá færri á næstu önn og þ.a.l. bara chill lærdómslega séð.

Svo er búið að vera afmæli hjá Gunnu Maggý, afmæli hjá Svönu og hellingur af þessu venjulega djammi og óvissuferð síðustu helgi með Nemendaráðinu, þar sem var ljótufataþema og já.. skulum bara segja að það hafi verið skrautlegt:)

Hildur var með þolfimið á hreinu..

Og myndirnar frá þessu öllu fara að skríða á netið. Ég er loksins búin að koma Búlgaríu myndunum á netið en er búin að reyna það nokkuð oft svo tími til kominn. Linkarnir af þessum myndum eru bara hér til hliðar svo vi ses..

Ég blogga pottþétt í Október afþví ég á afmæli þá;) eftir 28 daga nánar tiltekið:D

Blogodaria (eða hvernig í andsk.. sem það er skrifað)

Helga..

Heit eða hvað??


» 20 hafa sagt sína skoðun

04.07.2006 21:36:01 / helga_

hey fokkers!

 

  • Er í vondu skapi
  • Sem orsakast af endalausri rigningu
  • Og ég er flokkstjóri í unglingavinnunni
    • Þannig að ég þarf að vera úti
  • En mér er sama af því ég er að fara til Búlgaríu eftir 37 daga:D
  • Og mig langar svo á Þjóðhátíð
  • Þannig að kannski fer ég bara líka þangað
  • Ítalía voru að skjóta sér áfram í Úrslitaleikinn á Hm
  • Ég get ekki ákveðið hvert ég á að fara næstu helgi
    • Goslokahátíð í Eyjum eða á Írska Daga á Akranesi
  • Og ég er búin að láta fullt af nýjum myndum sem þið finnið til hliðar

Fokk hvað það er asnalegt að gera svona punktablogg! Það er búið að vera fullt af djammi sem eru misskemmtileg eins og gengur og gerist! E-ð Pakkhús/Kaffi Krús djamm í júní.

Og það var pósað..

Og meira..

Og meira..

 

Svo skelltum við okkur, nokkrar píur í bæinn á Þjóðhátíðardegi Íslendinga, 17. júní og það var meget sjovt.

 

Við eignuðumst vini..

Og vinkonu..

 

Jónsmessan var þar síðustu helgi og ég bjóst nú ekki við miklu en hún heppnaðist bara helvíti vel og ég skemmti mér ágætlega (held ég)! Minnið var í einhverju ólagi sökum móður minnar sem átti Tópas pela og í einhverju óðagoti rauk hún á klósettið inná Rauða Húsi og lét mig um að geyma töskuna.. vel gert mamma! En Jónsmessa þessi einkenndist af því að annaðhvort var fólk edrú eða hellllluð, lítill sem engin millivegur!

Hey, hellaða..

Mútta tútta og félagar..

 

Síðustu helgi var svo afmæli hjá Hildi Seljan sem er orðin tvítug tútta og þar var helvíti fínt! Allavega voru ég, Hildur, Ösp og Gunnhildur að brillera með söng og bröndurum, svo skemmtunin var í hæsta gæðaflokki og síðan var endað á Pakkhúsinu “sívinsæla”!

Afmælisbarnið

jahá..

Klósettsteming!

 

 

 

Svo eru myndir frá þessu öllu í myndalinknum!

Svo get ég ekki ákveðið hvert ég á að fara næstu helgi.. til Eyja á Goslokahátíð eða á Írska daga á Akranesi!?!?! Hjelp!!

Nenni ekki meira.. komið nóg fram í.. hvað eigum við að segja.. September??;)

Tjá

Helga


» 14 hafa sagt sína skoðun

11.05.2006 23:15:10 / helga_

dejavú..

Ég gæti eins endurtekið sömu færslu og ég gerði hérna fyrir jólaprófin í sambandi við einbeitingarleysi mitt. Þá var enginn góðviljaður á ferð sem vildi lána eða gefa mér afnot af einbeitingu sinni og þess vegna endurtekur þetta sig sífellt!

Já, þessi próf.. en í mínu tilviki er það eiginlega bara ÞETTA próf! Þetta er eitt lokapróf og ég nenni ekki að læra. Svo er fullt af fólki að fara í 8-9 próf en nei.. ég er að fara í eitt og læri ekki!

Vaknaði samt snemma í morgun, kl hálf átta takk fyrir, en ekki afþví ég ætlaði að læra.. ég vaknaði bara óviljandi en það gerir það að verkum að tíminn sem ég er búin að hafa í dag við að læra er enn lengri en samt tekst mér að horfa "aðeins" á sjónvarpið eða skreppa "aðeins" í tölvuna og margt fleira svona!

Svo er það spurning hvort ég geti haldið mér vakandi nógu lengi til að læra allt sem ég þarf að læra núna þar sem ég vaknaði svona snemma, án þess að svefngalsi eigni sér minn annars bráðgáfaða heila!


» 4 hafa sagt sína skoðun

11.05.2006 16:56:04 / helga_

Má þetta??


» 2 hafa sagt sína skoðun

21.04.2006 18:03:48 / helga_

Lover you should've come over..

Looking out the door
I see the rain fall upon the funeral mourners
Parading in a wake of sad relations
As their shoes fill up with water

Maybe I'm too young
To keep good love from going wrong
But tonight, you're on my mind so
You never know

Broken down and hungry for your love
With no way to feed it
Where are you tonight?
Child, you know how much I need it.
Too young to hold on
And too old to just break free and run

Sometimes a man gets carried away,
When he feels like he should be having his fun
Much too blind to see the damage he's done
Sometimes a man must awake to find that, really,
He has no-one...

So I'll wait for you... And I'll burn
Will I ever see your sweet return?
Oh, will I ever learn?
Oh, Lover, you should've come over
Cause it's not too late.

Lonely is the room the bed is made
The open window lets the rain in
Burning in the corner is the only one
Who dreams he had you with him
My body turns and yearns for a sleep
That won't ever come
It's never over,
My kingdom for a kiss upon her shoulder
It's never over,
all my riches for her smiles when I slept so soft against her...
It's never over,
All my blood for the sweetness of her laughter...
It's never over,
She's a tear that hangs inside my soul forever...

Well, but maybe I'm just too young to keep good love
From going wrong
Oh... lover you should've come over...

Yes, and I feel too young to hold on
I'm much too old to break free and run
Too deaf, dumb, and blind
To see the damage I've done
Sweet lover, you should've come over
Oh, love, well I'll wait for you
Lover, you should've come over
'Cause it's not too late.

Sjitt hvað þetta lag er flott.. get bara ekki hætt að hlusta á Jeff nokkurn Buckley!!


» 8 hafa sagt sína skoðun

04.04.2006 16:18:16 / helga_

X-Helga...

HALLÓ...!!!

Ég er ekki að fara að blogga neitt af viti núna vegna tímaleysis.. en vil vekja athygli hjá þeim sem eru í FSu og eru félagar í NFSu að setja X við mig semsagt Helgu Þórey í ritarann..!!!

 

Helga í ritarann, nanananana!!

 

Takk fyrir(",)


» 9 hafa sagt sína skoðun

20.03.2006 15:06:34 / helga_

ætlarðu bara að láta svona??

Einu sinni var maður sem var svo mjór að það var bara ein rönd á náttfötunum hans!!



» 22 hafa sagt sína skoðun

31.01.2006 13:14:45 / helga_

Viðburðarík helgi??

Já.. góðan daginn. Núna eru "ekki nema" 190 dagar í Búlgaríu and still counting!! :D

En að öðru.. þessi helgi er án efa sú viðburðaríkasta sem ég hef upplifað! Fór í bæinn í mínu sakleysi á föstudaginn með henni Þóru minni og var á leiðinni heim eftir að hafa skutlað henni í Þolló, þegar bílfjandinn stingur uppá því að fara að velta eitthvað. Bíllinn flaug e-ð útí móa og lenti í vatnspolli en það er greinilega einhver þarna uppi sem heldur svona mikið uppá mig og ég er í fínu lagi, ótrúlegt en satt.. allavega miðað við bílinn:S

En djammsjúklingurinn ég læt ekki e-ð svona aftra mér frá djammi og hvað þá Þorrablóti á Eyrarbakka. Á laugardagskvöldið var ekkert annað í stöðunni en að skella sér á blót, og þvílíkt snilldar blót sem þetta var!

Enn og aftur, frábært blót og enduðu skemmtiatriðin á því að ég var valin í skemmtinefnd fyrir næsta ár, takk fyrir takk, ásamt Kareni frænku, Gumma Gísla sem er formaður og ég get hlegið endalaust að (hann var nokkuð pirrí pú greyið yfir því) og fleiri Eyrarbakka hetjum eins og Mæju Gests og Óla Stínu og fleirum. Stefna mín og Guðmundar er svo, að næsta þorrablót verður svo rosalegt að hugleitt verður að halda ekkert aftur þorrablót...!! hahha..

En ég er búin að láta inn myndir af blótinu þó þær séu nú ekkert svo margar en þá er e-ð hérna -> http://public.fotki.com/helga87/orrablt_2006/ svo enjoy!!

Helga djamm-SJÚKLINGUR!! (bókstaflega..;))


» 28 hafa sagt sína skoðun

23.01.2006 23:36:26 / helga_

Búlgaría og þorrablót..

Jebbjebb..  ég er á leiðinni til Búlgaríu 10. ágúst í tvær vikur! Vá, verður það gaman.. ég get líka komið færandi hendi heim með fuglaflensu.. hverjum líkar það ekki? 

En já semsagt erum við, 8 stelpur,  að fara í "útskriftarferð" af því allavega helmingurinn af okkur er að útskrifast um jólin 2006. Verðið á mat og víni og fleiru þarna er bara djók og til dæmis kostar bjór 50 kall, vodkaflaska 230, að fara út að borða er 300 kall eða e-ð og svo er fullt fleira eins og teygjustökk og fleira skemmtilegt..!

Golden Sands..

Hótelið, Club Paradise Park..

Þetta á eftir að vera rugl gaman en þýðir samt ansi mikill sparnaður í sumar og þ.a.l. engin þjóðhátíð (sjáum til8))

En skólinn er byrjaður á fullu og ég ákvað að bæta aðeins við mig einingum og taka fjarnám, 2 námskeið, vera með í leikritinu og allt þetta eru 6 einingar þannig að ef þessi önn gengur alveg upp verð ég með 30 einingar eftir hana!

Seinasta helgi var róleg, bara vinna og læra og svo næstu helgi er þorrablót. Reyndar er þorramatur ekkert sem ég læt inn fyrir mínar varir en það er nú hægt að finna e-ð ætt þarna á milli.

Adiós..

Helga Búlgari

Minni á gestabók.. fokkers!!


» 24 hafa sagt sína skoðun

15.01.2006 22:09:16 / helga_

Eilífðarþynnka..

Er það til? Að vera bara alltaf þunn? Allavega er ég ansi nálægt því! En þar sem ég átti fríhelgi um helgina ákvað ég að vera bara í bænum alla helgina en hefði líklega betur verið heima og púslað eða e-ð, föstudagurinn var reyndar fínn en á laugardaginn byrjaði ég að drekka svo seint afþví Biggi var svo lengi að finna sig til (Biggi kelling) og ég var að keyra, þannig að ég þurfti að hella í mig til að ná hinum (Hildi sem var fyllri en Ragna Kristín og Snjólaug til samans á góðum degi) og varð þar af leiðandi heeellllluð!

Og núna sit ég í þynnku að blogga sem ég nenni ekki en ég lét undan þrýstingi og ákvað að skella inn örlítilli færslu.

En er farin að borða ristabrauð og horfa á simpsons, sem er það skemmtilegasta sem ég geri þessa dagana!

tjá..


» 22 hafa sagt sína skoðun

09.01.2006 11:09:03 / helga_

murrmurr

Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir gamalt.. ég hreinlega nenni ekki að gera einhvern annál  eins og allir eru að gera og segja frá öllu sem gerðist á árinu 2005.. það var heldur ekkert mikið annað en skóli, djamm, vinna, djamm o.s.frv..

Dana fær samt titilinn flutningameistari þar sem hún flutti tvisvar til danmerkur og ég bíð eftir að hún komi aftur(drífðu þig kona, ekkert vit í Danaveldi!)

Elín Systir eignaðist fimmta krakkann, hana Carmen HELGU!!

Ég ákvað að fara til útlanda en hætti við og ákvað það aftur og hætti aftur við (óákveðin eða??)

Svana og Ása fluttu báðar með köllunum sínun..

Biggi gerðist róni á Hlemmi og sötrar kardimommudropanna stíft..

Svo var bara þetta venjulega.. þorrablót, Þjóðhátíð, Jónsmessa og jááá..fullt fleira!

Jólin voru svo engin hátíð ljós og FRIÐAR, þar sem ég var full mestan hluta af jólunun og eyddi of miklum tíma í Hvíta Húsinu.. Það var skímóball  17. des, Sálin annan í jólum og svo Bjórbandið á áramótunum og það var án efa langskemmtilegasta ballið. Svo var bjórflóðið á Rauða Húsinu 30. des og síðan ball í þolló sem ég man sama og ekki neitt eftir..hefði alveg eins getað verið á Kaffi Krús með Jóa B og Geira á Fossi!

Jólin voru fín.. mikið étið af góðum mat og einhverjur rusli og ég fékk fullt af glæsilegum gjöfum.

En nú er skólinn byrjaður aftur og ég er í mínu fyrsta gati á þessari önn sem verður ekki aftur af því ég er með fulla stundatöflu takk fyrir takk, 25 einingar minnir mig! Sem þýðir bara það að ég verð að vera edrú allar helgar að læra.. nei, held ekki.

Ég ætlaði annars að taka seinasta djamm í nokkurn tíma á laugardaginn en svo er innflutningspartý hjá Ásu og Ellerti á föstudaginn og þar er bannað að vera edrú!

Nenni ekki meir, komið alveg nóg..

Helga!


» 10 hafa sagt sína skoðun

24.12.2005 17:27:27 / helga_

JÓL 2005!!

Já.. ég nennti ekki að gera jólakort, þið sem senduð mér verðið bara að fyrirgefa og ég lofa að senda ykkur á næsta ári:)

en...

Gleðileg jól, gott og farsælt komandi ár.. þakka ykkur öllum fyrir það liðna og sjáumst í banastuði á annan í jólum eða áramótum..:haha:

FELIZ NAVIDAD!!!


» 14 hafa sagt sína skoðun

14.12.2005 05:17:35 / helga_

Flóðhestarnir boða fæðingu frelsarans..

Já.. prófin eru búin og ég held að ég hafi aldrei verið jafn ánægð með það að klára próf. Ástæðan er sú að ég hef verið í heiftarlegu letikasti alla önnina og var alveg handviss um að falla í 2-3 áföngum. Þar á meðal var íþróttir, þar sem ég hef alveg síðan í 1. bekk í grunnskóla held ég alltaf fengið einkanir frá 8,5-10 en nei.. ég ákvað að fá bara 6 núna, sem ég get alveg sætt mig við, ég náði þó en þessi íþrótt, Badminton er leiðinlegasta íþrótt sem ég hef farið í! Ég hugsa að það sé skemmtilegra að vera í fótbolta með blindu fólki og 6 ára krökkum (ekki að það fólk sé e-ð verra, hugsa bara að geta þeirra sé ekki uppá marga fiska..)

En já, ég náði þó öllu og þarmeð er ég búin með alla þá ensku, íslensku og stærðfræði sem ég þarf að taka í þessum skóla en eftir þessa önn og nokkrar af einkununum þá, já..ég verð duglegri næst og VERÐ að vera það..!

Ég er búin að vera voða dugleg að henda inn myndum síðan á Þjóðhátíð (betra er seint en aldrei), söngvakeppni Nfsu, Dimmiteringunni og Staffadjammi hjá Snæland. Þar var Sylvíu Nótt þema, sem ég hugsa að sé vinsælasta þemað í partýum/djömmum í dag og það kom bara drulluvel út og auðvitað vann ég flottustu Sylvíuna.. þó svo að ég muni lítið eftir því..:$

 En ég er farin að sofa.. eða horfa á vídeó.. veit ekki..

svo góða nótt..8|


» 10 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4